Verður afleiðingin 40% lækkun á verðtryggingu?

Bíðum nú við, ef íbúðaverð lækkar um 40% ætti það auðvitað að hafa bein áhrif á verðtryggingu lána sem tekin eru til íbúðakaupa.

Ef þessi vísitala væri ekki tómur brandari væru þetta góðar fréttir fyrir skuldara sem ekkert eru á leiðinni að selja ofan af sér. En auðvitað virkar það ekki svoleiðis. Bara hækkanir hafa áhrif á verðtryggingarvísitöluna.

Ef lottómiðar, brennivín eða prins póló hækkar, þá hækka húsnæðislánin. En ef raunverð húsnæðis lækkar um 40% hefur það engin áhrif!

Fyrir hverja er þetta kerfi gert? Það stuðlar augljóslega ekki að neinu réttlæti.


mbl.is Spá 40% lækkun íbúðaverðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gylfi Björgvinsson

Rétt hjá þér  hef verið að blogga um  einmitt þetta  það verður að tengja vísitöluna viðfangsefninu annars stöndum við uppi eignalaus eftir örfáa mánuði

Gylfi Björgvinsson, 6.11.2008 kl. 15:12

2 Smámynd: Ásta

Nei það munu þau ekki gera. Nú hækka verðtryggð innlend lán vegna gengishruns íslensku krónunar þrátt fyrir samdrátt í einkaneyslu. Verðtryggðu lánin viðast því líka vera gengistryggð.

Ásta , 6.11.2008 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband