Færsluflokkur: Dægurmál
23.2.2008 | 11:10
Michael Moore & Fídel
Kvikmyndagerðarmaðurinn og baráttujaxlinn Michael Moore læðist ekki með veggjum. Nú hefur hann komið auga á nýjan vinkil á óskarsverðlaunahátíðina þar sem Sicko er tilnefnd í flokki heimildarmynda:
"I got some great news today because I was trying to figure out how I was going to get Castro into the Oscars and for me he resigns today so he can come to L.A. and go as my guest and perhaps give the acceptance speech," Moore told AP Television on Tuesday night.
"As long as he keeps it under five hours. I'm telling you, that's got to be a ratings grabber. Can you imagine him? Showing up? If I could talk to (Oscar producer) Gil Cates and maybe get Castro in a dance number at the beginning of the show? Great."
Hér er frásögnin öll og myndin sem fylgir er góð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.2.2008 | 22:06
Dagblöðin og Netið
Dagblöðin eru oft nísk á að leyfa hverjum sem er að skoða efni sitt og margt er bara í boði fyrir áskrifendur.
Á þvælingi mínum um netheima rakst ég nýverið á vefsetur danska blaðsins Information sem þar í landi þykir nú fremur vinstrisinnað. Blaðið hefur sérstakan fréttavef en vísar einnig oft til greina sem birtast í prentuðu útgáfunni og eru því ekki aðgengilegar á Netinu - strax. En það er ástæðulaust að örvænta, blaðið opnar fyrir allar fréttir og greinar sólarhring eftir að þær birtast á prenti. Þá er það eintak hvort sem er hætt að seljast því ekkert er eldra en dagblað frá í gær þótt sumar greinar geti verið áhugaverðar. Þetta er til fyrirmyndar.
Ég bíð spenntur eftir að opnað verði fyrir grein um Åsne Seierstad og bók hennar ,,Engilinn í Grosní" sem hef nýlega lesið. Enn einu sinni virðist hún verða fyrir gagnrýni um meðferð heimilda sinna og heimildamanna. Ég ráðlegg fólki engu að síður að lesa bókina, hún gefur góða mynd af landi sem lagt hefur verið í rúst í stríði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2008 | 21:47
Farísei tekur til máls
Til er maður í Netheimum sem kallar sig Jón Val og leyfir sér að skrifa eftirfarandi hrokafullan óhroða um athugasemd konu minnar sem gerði þau mistök, þvert ofan í mín ráð, að taka hann alvarlega og svara honum eins og manni:
3. innlegg Heidi Strand hér í gær, kl. 19:08, er eins og innlegg Jóhannesar næst þar á eftir sorglegt dæmi um það, að án kristinnar sannfæringar eða án trúar er mannleg skynsemi skilin eftir án hjálpar í þessu máli
Það er með ólíkindum að þarna skuli tala maður sem telur sig markaðan af kristilegum lífsgildum. Af nær 40 ára kynnum af konu minni veit ég að enginn sem ég þekki býr yfir dýpri og einlægari sannfæringu og trú en hún eða vill öðrum betur en hún. Ég fæ ekki orða bundist og leyfi mér að lýsa því yfir að ég mun aldrei aftur lesa það sem þessi eiturpenni lætur frá sér fara, það er mannskemmandi og gerir engum gagn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.2.2008 | 16:21
Að refsa tíu milljón manns
Kúba og Bandaríkin eiga sér aldagamla sögu um samstarf, verslun og menningu.
Þegar mafían ætlaði að leggja eyjuna undir sig reis þjóðin (eða hluti hennar) upp gegn því og það fyrirgefa bandarísk yfirvöld aldrei. Þótt fyrirgefning sé kjarninn í kristinni trú er hún enginn þáttur í bandarísku stjórnkerfi.
Er nú ekki kominn tími til að loka þessu máli? Þjóðin þjáist en hugsar sem svo að betra sé að vera horaður uppreisnarmaður en feitur þræll - og lái henni það hver sem vill.
Reyndar eru kúbverskir flóttamenn líklega ein helsta hindrunin í vegi fyrir sögulegum sáttum Kúbu og Bandaríkjanna.
Viðskiptabann áfram á Kúbu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.2.2008 | 15:01
Zeppelin og Neil Young setja punktinn yfir i-ið
Mikið var það gott val hjá Evu Maríu í lok þáttar síns í gærkvöldi, eftir viðtalið við Þórólf um borgarmálefnin, að spila Zeppelin-lagið "Dazed & Confused". Svona eiga sýslumenn að vera.
Þetta slær þó ekki út viðtalið við ráðherrann sem sagði af sér, hélt klukkutíma ræðu sem var sent út beint og að því búnu spilaði Rás 2 lag eftir Neil Young, "Piece of Crap".
Ég hlakka reyndar mikið til að sjá Neil í Köben nú í lok mánaðarins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.1.2008 | 11:24
Hæsta hótel í heimi?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.1.2008 | 21:57
Hvað er í gangi?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.1.2008 | 15:12
Framúrakstur!
Ungur danskur piltur reyndi í morgun að aka fram úr bílalest að hætti íslenskra ökufanta. Það fór svona.
(Ljósmynd: Local Eyes)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2008 | 23:19
Warren Zevon
Zevon var einn af þessum vesturstrandargaurum, samstarfsmaður Jacksons Brownes og fleiri. Honum var m.a. dauðinn hugleikinn á sinn sérstaka hátt eins og sést til dæmis þessu stórskemmtilega lagi Roland The Headless Thompson Gunner.
Hann samdi lagið Keep me in your heart for a while skömmu áður en hann dó en hér er ljúf skyggnusýning um manninn sýnd yfir laginu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.1.2008 | 15:35
Læknar án landamæra benda á hörmungar
1. Hungursneyð og skelfingar þess fólks sem flúð hefur bardagana í Sómalíu.
2. Örvænting, ringulreið og hrunið heilbrigðiskerfi í Simbabve.
3. Aukin útbreiðsla fjölónæmra berkla.
4. Vanmáttug viðbrögð gegn vannæringu.
5. Vandi almennra borgara í vopnuðum átökum á Sri Lanka.
6. Stöðugt versnandi ástand í Kongólýðveldinu.
7. Ömurlegar aðstæður íbúa á átakasvæðum í Kólumbíu.
8. Takmörkuð neyðarhjálp í Mjanmar/Burma.
9. Borgarar í miðri átakalínu vopnaðra hópa í Miðafríska lýðveldinu.
10. Neyðarhjálpar er áfram þörf í Téténíu þótt dregið hafi úr bardögum þar.
Það eru ekki alls staðar jólin.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)