Nú á að finna sökudólga!

Í fimm vikur hefur verið tönnlast á því að ekki megi leita uppi sökudólga heldur eigi bara að fara yfir málin. Ef einhver ráðamaður ropar einhverju upp úr sér, þótt hann hafi ekkert að segja, eru því gerð vönduð skil í öllum fréttamiðlum. En þegar haldinn er öflugur fundur til að mótmæla ástandinu með nokkrum afbragðsgóðum ræðum eru þær hunsaðar, rétt eins og enginn hafi sagt neitt, en allri athyglinni beint að nokkrum prökkurum sem grýta gamalt hús í miðbænum með matvörum. Menn tala ábúðarfullir um saurgun hússins en auðvitað er það hjón eitt við hliðina á þeirri saurgun lands og þjóðar sem hefur átt sér stað undanfarið og sem fólki ofbýður algjörlega. Kreppan er rétt að byrja og þessi mótmæli eru bara fyrirboði þess sem koma skal þegar þjóðin hefur ekki lengur neinu að tapa.
mbl.is Eggjum kastað í Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gylfi Björgvinsson

já Matthías  ég held að veturinn framundan verði sögulegur  og verði minnst á spjöldum  sögunnar og því miður held ég að þú hafir rétt fyrir þér  um að kreppan sé bara að byrja

Gylfi Björgvinsson, 9.11.2008 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband