28.10.2008 | 18:26
Fé til handa námsfólkinu!
Þetta er glæsilegt framlag þjóðar sem ekkert vill okkur nema allt hið besta. Færeyingar gera sér grein fyrir gildi menntunar og þekkingar hér á norðurslóðum og því geri ég það að tillögu minni að féð frá Færeyjum verði eyrnamerkt í þágu íslensk námsfólks erlendis. Það væri áþreifanlegur vitnisburður þess að við tökum svona hjálp alvarlega og viljum beina henni til framtíðar.
Siðferðileg skylda að hjálpa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er sérstaklega góð tillaga hjá þér Matthías.
Árni Þór Sigurðsson, 28.10.2008 kl. 18:48
Tek undir með Árna. Mjög góð tillaga. Vonandi nær hún eyrum þeirra sem ráða þessu.
Greta Björg Úlfsdóttir, 28.10.2008 kl. 21:01
Þetta er góð tillaga hjá þér Matthías og líklega ættum við að lofa Færeyingum því að stofna aldrei íslenskan banka í Færeyjum....! Þannig minnkum við alla vega líkurnar á því að þeir lendi í viðlíka hremmingum og við!
Ómar Bjarki Smárason, 29.10.2008 kl. 00:22
Frábær hugmynd - styð hana af öllu afli!
Lára Hanna Einarsdóttir, 29.10.2008 kl. 01:57
Þú ert frábær.
persóna, 29.10.2008 kl. 16:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.