Færsluflokkur: Dægurmál
6.10.2008 | 22:59
Lausleg þýðing
Hér er upphaf þessarar fréttar þýtt með þýðingaforriti á dönsku:
Et beskyttelser hagsmunur allemandsejes búast er ved at en frumvarp om aktioner på en fjármálamarkaður bliver accepteret i en aften eller en nat.
Össur Skarphéðinsson siger om fortsættelsen at den allir vid skæbner Glitnir og Landsbanki har udstået en áhlaup i Bretland.
En kaupþing har så fået en fyrirgreiðsla i nationalbanken ud et hunfår meget tryggur panter.
Verndum hagsmuni almennings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2008 | 17:39
Ungir sjálfstæðismenn um Íbúðalánasjóð
,,Nú á dögum er ekki þörf á því að ríkið láni til fasteignakaupa í samkeppni við einkafyrirtæki og ber stjórnvöldum að bregðast við áliti ESA með því að leggja niður Íbúðalánasjóð í núverandi mynd. Það væri að auki til þess fallið að skapa heilbrigðari aðstæður á fjármálamarkaði hér á landi."
Víðtækar heimildir til inngripa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.10.2008 | 22:20
Fjárglæfrar að blekkja sjóðina til sölu nú
Er það ekki einmitt það sem aular gera, að kaupa dýrt og selja ódýrt? Vonandi láta lífeyrissjóðirnir ekki blekkjast af þessu lýðskrumi. Þessi samtrygging stórs hluta þjóðarinnar er nær því eina haldreipið sem við eigum, það má ekki fórna henni í stundarbrjálæði gjaldþrota stefnu skammsýnna jakkalakka.
Heyrðist þessi söngur annars ekki líka þegar Kárahnjúkavirkjun var að rísa?
Lífeyrissjóðir komi að lausn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.9.2008 | 19:37
Hér er óvæntur vinkill á krísu dagsins
"Hvis man vil vide, hvad der sker med økonomien om 10 år, skal man ikke lytte til moderne økonomer, men studere Marx," siger Alan Freeman.
Stjórnvöld semji við erlenda seðlabanka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.9.2008 | 21:01
4 mörk úr föstum leikatriðum
Það var skrýtið að heyra Guðjón Þórðarson á Sportrásinni gagnrýna Norðmenn fyrir að geta ekki búið sér til færi heldur verða að skora úr föstum leikatriðum. Var það ekki einmitt það sem íslenska liðið gerði líka?
Annars var þetta vel að verki staðið og Óli Jó heldur vonandi áfram að koma knattspyrnuheiminum á óvart.
Frábær úrslit í Osló | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.9.2008 | 23:13
Tvö sem misskilja
Þar hitti skrattinn ömmu sína - svo vitnað sé í gamalt íslenskt orðtæki.
Condo lítur svo á að öll átök í heiminum séu sambærileg við átök svartra og hvíta í Suðurríkjum Bandaríkjanna á æskuárum sínum og Gaddafi sér í henni konu af af afrískum uppruna sem skipar aröbum fyrir.
Og svo eru menn hissa á því að alþjóðleg samskipti séu upp í loft!
Rice fundaði með Gaddafi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2008 | 12:54
Kosningabarátta dauðans
Hér er linkur á Moore og viðtalið sem vitnað er í.
Dylan komast ótrúlega vel að orði í lagi sínu "With god on our side" þar sem hann lýsti því hvernig allir gera tilkall til þess að eiga guð og njóta stuðnings hans og hér er linkur á bréf til guðs frá Moore um prestinn Dobson sem bað rétttrúaða um rigningu á Obama svo hann yrði að fresta tilnefningarræðu sinni
Segir Gústav sönnun þess að Guð sé til | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.8.2008 | 13:17
Hugmynd að fjáröflun
Guðjón, Snorri og Ólafur í úrvalsliði Ólympíuleikanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.8.2008 | 10:55
Raddir tuðsins hljóðna
Og þar með eru allar úrtöluraddirnar um þátttöku forseta Íslands á Ólympíuleikunum væntanlegar endanlega þagnaðar, ekki einu sinni bergmálið eftir.
En setningin ,,Ísland er stórasta land í heimi!" hefur ekkert með stærð að gera heldur kraft, Dorrit á við að henni finnist Ísland vera magnaðasta land í heimi og segir það bara á sinn hátt. Gott hjá henni!
Þegar Dorrit veifaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2008 | 22:33
Góðir flokkar fyrir karla eða konur
Í Íslandi í dag kom fram í kvöld að konur hefðu sagt sig úr Framsóknarflokknum og varð það tilefni spurningarinnar: ,,Er Framsóknarflokkurinn kannski ekki góður fyrir konur?"
Nú sögðu bæði Ólafur F. og Jón Magnússon sig úr Sjálfstæðisflokknum en einhvern veginn man ég ekki eftir spurningu um hvort Sjálfstæðisflokkurinn væri kannski ekki góður fyrir karla.
Marsibil segir sig úr Framsóknarflokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)