Færsluflokkur: Dægurmál
17.2.2007 | 19:57
Kjarvalsstaðir - hryllingur og list
Um þessar mundir eru athyglisverðar sýningar í gangi á Kjarvalsstöðum.
Rúrí á mikinn senógrafískan foss sem kemur afar vel út. Ólafur Elíasson höfuðsnillingur á svo foss utandyra sem líta má á sem myndlíkingu af íslenska efnahagskerfinu. Þar rennur vatn upp í móti og öllu battaríinu þarf að halda uppi með digurri burðargrind og rörum og tengjum sem búa til blekkinguna. Allt leikur á reiðiskjálfi og töluvert sullast út fyrir. Þegar vel er að gáð liggur svo hundur inn í hús eftir utanaðkomandi aflgjafa. Skemmtilega tvíræð innsetning.
Fyrir miðju miðrými austursals er stórkostleg ljósmynd af Kjarval þar sem hann stendur eins og fornkappi sem tekst á við óvin nema hvað hann er að takast á við list sína. Í sama rými er svo gluggamyndin skemmtilega sem verður því betri sem maður fer fjær henni.
Á sínum bestu stundum var Kjarval einstakur maður. Hann bjó reyndar í mörg sumur hjá afa á Strönd til að mála Heklu og teiknaði m.a. mynd af móður minni barnungri sem engli. Hún varð svo móðguð yfir vængjunum að hún reif myndina og sér eftir því æ síðan.
En ég kemst ekki hjá því að tala um hryllinginn líka. Hvenær ætla menn eiginlega að taka á þessu stórkostlega lýti sem loftið er? Í sýningarsölum á að vera hátt til lofts en þessu hrúgaldi tekst algjörlega að eyðileggja salina í þessu annars ágæta húsi. Synd væri ef það yrði rifið áður en færi gefst á að sjá hvernig salirnir taka sig út án hryllingsins í loftinu. Það er auðvitað barn síns tíma en með nútímatækni og þekkingu á lýsingu er það orðið algjört steinbarn. Ég bendi í allri hæversku á Ljóstæknifélag Íslands en undirritaður hefur þýtt það mörg rit fyrir þá ljúflinga að hann þorir að fullyrða að kunnáttumönnum yrði ekki skotaskuld úr því að lýsa salina eins og best gerist erlendis.
Báknið burt!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2007 | 10:17
Íslensku áhrifin
Það er augljóst að viðskiptalífið í því landi er að draga sinn lærdóm af íslensku útrásinni. Málið er bara hvort Danir láta bjóða sér endalausar og jafnvel órökstuddar hækkanir á sama hátt og Íslendingar hafa löngum gert án þess að mögla.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2007 | 22:18
Spurningalisti fyrir komufarþega?
Nú er mikið rætt um mögulega lögbrjóta sem eru að koma í hvataferð til Íslands. Sumir vilja nú frekar kalla það frumhvataferð. En málið er sem sagt hvort þeir ætli að brjóta lög á Íslandi.
Nú er það svo að lög hafa oft verið brotin á Íslandi og það hafa eflaust líka gert margir af þeim sem gagnrýna komu þessa liðs. Hér er tillaga að spurningalista sem væntanlegir gestir í ,,Landinu helga" gætu þá þurft að svara áður en klámhundunum verður hleypt hingað:
1) Hefur þú komið þér undan greiðslu á (virðisauka)skatti eða hyggstu gera það á meðan þú dvelur hér á landi?
2) Hefur þú ekið drukkin(n), setið í hjá drukknum bílstjóra eða hyggstu gera það á meðan þú dvelur hér á landi?
3) Hefurðu greitt starfsfólki þínu laun undir borðið eða hyggstu gera það á meðan þú dvelur hér á landi?
4) Hefurðu ekið yfir löglegum hámarkshraða eða hyggstu gera það á meðan þú dvelur hér á landi?
5) Hefurðu smyglað áfengi og/eða tóbaki, matvörum eða dönskum pylsum eða hyggstu gera það í ferðinni hingað til lands?
Allt er þetta ólöglegt athæfi og ef rökin um að banna mögulegum lögbrjótum eiga að halda verður bannið að ná til allra, annað væri mismunun og hræsni.
En verði þetta eyðublað lagt fyrir alla Íslendinga á heimleið frá útlöndum, hve mörgum yrði þá meinaður aðgangur að landinu?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2007 | 18:04
Ég býð sjálfan mig velkominn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)