Færsluflokkur: Spaugilegt
19.1.2008 | 11:24
Hæsta hótel í heimi?
Á blaðsíðu 3 í 24 stundum dagsins er heilsíðuauglýsing frá mínum gamla skólabróður Helga Jóhannssyni í Sumarferðum. Þar lofar hann hinu ljúfa lífi á Costa Del Sol á suðausturströnd Spánar með kampavíni í morgunverð (og þá væntanlega hausverk í hádeginu
) en það merkilegasta er þó að hann býður til gistingar í hóteli sem hlýtur að vera hið hæsta í heimi. Maður getur nefnilega setið á svölunum og haft útsýni yfir allt Kyrrahafið !!!